sunnudagur, september 11, 2005

11....10....9...8

8 dagar! Nú er talið samviskusamlega niður á hverjum morgni. Í dag eru 8 dagar þar til vaknað verður síðnætur (AB: ég ætla að vakna ótrúlega snemma, klukkan tvö! Mamma: nei, nei við getum nú sofið aðeins lengur en til tvö) ..farið í sérvalin ferðaföt ... borðaður morgunmatur í hvítskrúbbuðu eldhúsi (mamma (og pabbi!!...?) ætlar að vera búin að taka allt í gegn).....haldið út í morgunskímuna með tösku í hendi...sest inn í tandurhreinan bíl hjá dularfullum manni (leigubílstjóri)....farið í RÚTUNA.....keyrt alveg þangað til sést í stóru flugvélarnar....ó mæ god....ótrúlega flotta bókin með myndinni af okkur dregin fram (passinn)....drukkinn djús innan um fullt af fólki sem talar ÚTLENSKU.....svo verður stigið inn í galdratækið (ó, ó, ... öndurnaræfingarnar hugsar hin flughrædda mamma....hvítvínið!)....Og svo...

Sætaskipan hefur þegar verið vandlega skipulögð og yfirfarin af ÖMMU svona til að róa hennar eigin ótrúlega tilhlökkunarspenntu taugar.....(amma og afi koma líka).

Og svo verðum við brátt á hinum kyngimagnaða og dularfulla stað PORTÚGAL!!! Til að undirbúa sig andlega er nauðsynlegt að fá nokkrar grunnupplýsingar: Mamma, eru ljón í Portúgal? Pabbi, verðum við alltaf í sundlaug (nefninlega búin að komast að því að eitthvað snýst þetta um sundlaugar og svoleiðis)? Eru hákarlar á ströndinni? Borðar maður mat í Portúgal? Amma, eru jól í Portúgal? Verðum við í EITT ÁR (pabbi: nei, nei, tvær vikur)? Hvað er það margir dagar? 300? Eru sverð í Portúgal (og meðan ég man, úr því við erum komin út í þessa sálma:) Af hverju notar maður ekki spjót til að veiða dýr heldur byssur (spurt í sexhundraðasta skiptið þá vikuna)...

Og lítil hnáta syngur: Pottúga, pottúga...sumakjó. Nefninlega búin að fá fullan poka lánaðan af sumarkjólum og höttum og svoleiðis.

Ó, allar þessar töfrastundir sem eru framundan!

þriðjudagur, september 06, 2005

Ég er bestur!

Gormurinn litli getur verið doldið góður með sig stundum. Hann kann að lesa bækur eftir eina lestrarstund með móður sinni. Hann kann karate af því að vinur hans í leikskólanum hefur kennt honum nokkur trix. Hann þarf sko ekki að fara í skóla til að læra skylmingar því hann kann skylmingar. Hann er ótrúlega miklu betri en mamma í reikningi. Hann getur lyft ótrúlega þungum hlutum. Og svo: hann hleypur hraðar en allir.

Móðir hans var orðin doldið hrædd um að litla montrassið færi nú aðeins framúr sér í gortinu svo hún ákvað að kenna honum lexíu. Ari hélt því statt og stöðugt fram að hann hlypi mun hraðar en hún. Mamma skoraði stúfinn á hólm og þó öllu jafna hefði hún leyft honum að vinna, var ekki svo í þetta skipti. Mamma, Ari og Ásgerður Helga röðuðu sér á línuna og Ari hrópaði: einn, tveir og nú! Svo, öllum til mikillar undrunar að sjálfsögðu, skaust mamma langt frammúr stuttfótunum fjórum. En drengurinn sá fyrir þessu og mamma heyrði kallað lengst fyrir aftan sig: "sá vinnur sem er í öðru sæti"!!!

mánudagur, september 05, 2005

Haustið komið

Jæja, áskoranirnar eru orðnar margar um að hætta í sumarfríi svo við verðum bara að hætta í sumarfríi. Hvaða rugl er þetta annars eiginlega í "commentinu"? Tómar einhverjar auglýsingar. Verð ég að fá mér lykilorð á heimasíðuna, eða hvað geri ég?

Frá því í vor hefur þetta gerst: nokkrar kjötbollur hafa bæst við beinin í börnunum, nokkur hár hafa fengið að fjúka (Ari í klippingu orðinn dauðleiður á "drengjalokkunum": já, styttra mamma, styttra, rakaða mamma, rakaða!!!), nokkrir sentimetrar uppávið, nokkur trix í viðbót (tvisvar sinnum tveir eru fjórir, tvisvar sinnum þrír eru sex, þrisvar sinnum þrír eru tíu!) og síðast en ekki síst: nokkrar rottur birst í garðinum! Já, það var heil fjölskylda búin að hreiðra um sig í garðinum í vor og nú þarf sumsé að gera við skolpið.

Svo má ekki gleyma því sem hefur ekki gerst í sumar: engin mastersritgerð hefur verið kláruð. Nei, en hún er komin hálfa leið og skal komast í höfn fyrr en síðar.

þriðjudagur, maí 17, 2005

Blogg í sumarfrí

Fjölskyldan hefur ákveðið að setja bloggið í sumarfrí.

Ritarinn er nú upptekinn við mastersritgerð. Auk þess hrikalega andlaus. Sennilega tengist þetta tvennt eitthvað.

Gleðilega sumartíð!

AB, ÁHB og mamma.

fimmtudagur, maí 05, 2005

Ranga ríka

Ranga ríka þýðir "mig langar líka". Ásgerði langar í margt, bróðir hennar ekki fá nokkurnskapaðanhlut nema trítlan segir "ranga ríka". Og auðvitað langar hana líka. Hún er líka manneskja og þreytist ekki á að minna alla á það. Þess vegna fékk hún tvíhjól þegar bróðir hennar fékk svoleiðis þótt hún geti ekki hjólað á því að svo stöddu. Þess vegna er bróðir hennar sendur í rúmið kl. 8 þótt allir viti að hann sé ekki þreyttur - hann er þar a.m.k. þar til stúfan er sofnuð. Svo læðist mamma inn og býður honum að koma og horfa á "Americas next top model" með sér inní stofu.

Eins og áður hefur komið fram er stúfan mikill söngfugl. Hún syngur á ýmsum tungumálum:

simming simming in de simmipú (swimming swimming in the swimming pool)

Svo stundum slær saman lögum:

Atti katti nóa, atti katti nóa
Er a poppa popp

En oftast heldur hún tónleika eins og reynd söngkona og fer þá jafnan fram milli laga - svona til að setja meiri svip á sýninguna.

mánudagur, maí 02, 2005

Unglingur við morgunverðarborðið?

Ari (gerir sig tilbúinn til að fara að borða cheeriosið): jæja, ég ætla að kasta þessu ofan í kokið á mér.
Mamma: Ha?
Ari: nei, bara að djóka.

mánudagur, apríl 25, 2005

Trítlarnir sofnaðir og vornóttin úti.
Við Bjarni héldum uppá 7 ár í dag.
Þá var líka vornótt.

Fallegasta ástarjátningin

Mamma, hvað verður þú gömul þegar ég er þrjátíuogeins?
Næstum sextíu ára.
Verður þú þá nokkuð dáin?
Nei, við skulum vona ekki.
Þögn.
Ég verð sorgmæddur þegar þú deyrð. En bara svolítið, því ég á börn.
Þögn.
Veistu, ég elska þig svo mikið.
Þögn.
Getur maður ekki haldið áfram að elska þó einhver sé dáinn?

Heilsan virðist fara batnandi...

Í morgun fékk veiki mallinn alla athygli litla stúfsins og í húsinu ríkti þögn, fyrir utan kannski nokkrar stunur af og til.

Í hádeginu reis stúfurinn svo upp í rúminu og bað um ristað brauð og eplasafa. Svo hóf hann upp raust sína:

"Folaldið er minnsti hesturinn, af því litlabarnið, folöld geta verið fjögurra ára hestar. Eða eins árs hestarnir sem eru folöld, það eru minnstu hestarnir og líka núllára hestarnir. Þeir eru jafnstórir og eins árs hestarnir.

Þeir hestar geta verið stelpur og strákar. Mömmurnar eru hryssur. Veistu en ég þarf að segja þér eitt, að folöldin tvo, núllára og eins árs, þau fæddust á sama tíma, því núllára er eins árs. Núllára er smá eins árs, og eins árs er líka smá eins árs en tveggja ára er meira að segja ekki eins árs.

Veistu! Það er til folald í þeirri fjölskyldu sem er 17 ára eða 18. folöld eru svona litlir hestar en 17 ára hestur er svona þykjustu-folald, það er stórt. 17 ára folald er bara þykjustu folald.

Allir... folaldið á miklu meiri afa en hann á ömmur, hann á miklu meiri afa en ömmur. En veistu....hann á langafa sem er lítill, hann á langafa sem er lítill. Veistu... samt er langafinn hans stærri en amman, þótt hann sé lítill. Langamman var stærst, hún var eins stór og Hallgrímskirkja. Er hún ekki stór? Hún er aðeins minni en frelsisstyttan... frelsisstyttan er stærri en Hallgrímskirkja.

Á ég að segja þér...veistu? Langamman og langafinn búa í Suður-Ameríku, ekki Suður-Afríku. Og líka Suður-Afríku. Þau búa í mörgum löndum. Meira að segja líka í Afríku og í London...og veistu hvar þau búa meira að segja líka? Í sveitinni á Englandi." O.s.frv. os.frv.


Hjúkk! Það lítur út fyrir að barnið sé ekki mjög lasið.

Gubban

Jæja, hin ársfjórðungslega gubba er nú komin - það er vorgubban. Ari kastaði upp í morgun og var alveg grænn í framan. Við vorum hræðilegir foreldrar því við héldum að hann væri að beita okkur trixum til að sleppa við leikskólann og fá að horfa á spólu.

Vonandi sleppa aðrir.... Hmmm...það er yfirleitt einhver sem sleppur, stundum Ari, stundum pabbi, sjaldan Ásgerður Helga, en mamma.....hún sleppur aldrei við gubbuna. Gubban elskar mömmsu. Jæja, vonandi ekki í þetta sinn..
Gleðilegt sumar.